Líðan stúlkunnar, sem stungin var á menningarnótt, er óbreytt. Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar, staðfesti það í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Stúlkan hefur verið í lífshættu á sjúkrahúsi frá því að árásin var gerð fyrir viku.

Héraðsdómur Reykjavíkur ákvað í gær að framlengja gæsluvarðhald yfir meintum geranda, sextán ára gömlum pilti á grundvelli almannahagsmuna.

Drengurinn var í gærmorgun fluttur í fangelsið á Hólmsheiði, og var gripið til þess ráðs til þess að tryggja öryggi hans, en honum hafa borist líflátshótanir.