Lindakirkja
Lindakirkja

Hljóðbók Biblíunnar kemur út í dag. Er þetta í fyrsta skipti sem bókin kemur út í heild sinni á íslensku. Hljóðbókin er alls 90 mínútur og 19 mínútur.

Níu leikarar komu að lestri á textanum og unnið var að verkefninu með hléum í fimm ár. Verkefnið var allt fjármagnað með frjálsum framlögum velunnara Biblíunnar.

Hægt er að hlusta á hljóðbókina án endurgjalds á heimasíðu Biblíufélagsins, biblian.is. Hljóðbók Biblíunnar er jafnframt fáanleg á helstu hljóðbókaveitum, svo sem Storytel og Spotify.

Útgáfu hljóðbókarinnar verður fagnað kl. 11 í Lindakirkju í dag. Þar verður útgáfan kynnt og tækifæri gefst til að hlusta á og læra um hina heilögu hljóðbók.

Útgáfufögnuðurinn er hluti af Kirkjudögum þjóðkirkjunnar sem lýkur á morgun,

...