Elín Hall
Elín Hall

Tónlistarkonan Elín Hall verður næsti gestur Magnúsar Jóhanns píanóleikara í tónleikaröð hans Á inniskónum. Tónleikar og samtal tón­listar­mann­anna fer fram í Hannesarholti í kvöld, 31. ágúst, kl. 20. Elínu „skaut upp á stjörnuhimininn þegar hún fór með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Lof mér að falla árið 2018. Hún er lagahöfundur, leikkona og söngkona og hefur undanfarin ár starfað bæði við leiklist og tónlist,“ segir m.a. í tilkynningu.