Heimkoma Þórir Guðmundur Þorbjarnarson í treyju KR á nýjan leik.
Heimkoma Þórir Guðmundur Þorbjarnarson í treyju KR á nýjan leik. — Ljósmynd/KR

Körfuknattleiksmaðurinn Þórir Guðmundur Þorbjarnarson er genginn til liðs við uppeldisfélagið KR á nýjan lek. Þórir skrifar undir tveggja ára samning við KR en hann kemur frá Tindastóli, þar sem hann lék á síðasta tímabili. Þórir lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með KR 16 ára gamall en hann varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari og tvisvar sinnum bikarmeistari. Þórir fór síðan í skóla í Bandaríkjunum en hann hefur einnig leikið erlendis.