ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Árbæjarkirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti er Krisztina Kalló Szklenár. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl
Gufudalskirkja í Reykhólaprestalli
Gufudalskirkja í Reykhólaprestalli — Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson

ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Árbæjarkirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti er Krisztina Kalló Szklenár.

BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar fyrir altari. Örn Magnússon er organisti.

BÚSTAÐAKIRKJA | Síðasta kvöldmessa sumarsins í Bústaðakirkju fer fram 1. september kl. 20. Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór syngur einsöng og leiðir almennan safnaðarsöng ásamt Jónasi Þóri organista. Sr. Þorvaldur Víðisson flytur hugleiðingu og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum.

DIGRANESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Vinir Digraneskirkju leiða söng. Súpa á eftir. Íþrótta- og sunnudagask. kl. 11.

DÓMKIRKJAN | Það verður engin messa í Dómkirkjunni 1.

...