Tónlistarhjónin Regína Ósk og Svenni Þór hafa gengið í gegnum margt saman en þau hafa verið saman í 18 ár og eiga þrjú börn. Þau vinna nú saman að útgáfu nýrrar plötu, en þau frumfluttu nýtt ástarlag af plötunni, sem samið er um þau, í Skemmtilegri leiðinni heim á K100 í vikunni.

Lagið heitir Óvænt ferðalag og má finna á helstu streymisveitum.

Það er eftir Vigni Snæ úr Írafári sem vinnur plötuna með hjónunum, en textinn er eftir Einar Laufdal.

Hann samdi, eins og áður sagði, textann um þau Regínu og Svenna og ást þeirra en þau hjónin segjast tengja algjörlega við hann.

Regína og Svenni ræddu um lagið í þættinum á K100 en hægt er að hlusta á viðtalið og frumflutning þeirra á laginu á K100.is.