Karlmaður á fertugsaldri lést í vinnuslysi á byggingarsvæði í Urriðaholti í Garðabæ í fyrradag. Hinn látni var erlendur ríkisborgari, en ekki er unnt að skýra frá nafni hans að svo stöddu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Vinnueftirlitið rannsaka…

Karlmaður á fertugsaldri lést í vinnuslysi á byggingarsvæði í Urriðaholti í Garðabæ í fyrradag. Hinn látni var erlendur ríkisborgari, en ekki er unnt að skýra frá nafni hans að svo stöddu.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Vinnueftirlitið rannsaka nú tildrög slyssins, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni. Hún var kölluð til skömmu fyrir klukkan fjögur í fyrradag en þrír sjúkrabílar og einn dælubíll voru sendir á vettvang auk fjölda lögreglumanna.