Katrín Jakobsdóttir
Katrín Jakobsdóttir

Hið íslenska glæpafélag stendur fyrir dagskrá á bókasöfnum í vikunni. Syst­kinin Ármann og Katrín Jakobs­börn leiða bókmenntagöngu undir yfirskriftinni „Bræður, systur og glæpir“ en hún hefst kl. 20 þriðjudaginn 3. september við Borgar­bókasafnið í Grófinni. Félagið býður bókasöfnum um land allt að halda Glæpakviss á fimmtudag, 5. september, en spurningahöfundur er foringi Glæpafélagsins, Ævar Örn Jósepsson.