Slökkva skal á auglýsingaskilti við bensínstöð Orkunnar við Miklubraut og fjarlægja það. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu eigenda skiltisins um að ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkur þess efnis skuli ógilt. Reykjavíkurborg hótaði eigendum skiltisins dagsektum upp á 150 þúsund krónur yrðu þeir ekki við umræddri kröfu. » 4