Enrique Llorens Izaguirre fæddist 25. júní 1937. Hann lést 11. ágúst 2024. Útför hans fór fram 26. ágúst 2024.

Þann 26. ágúst sl. kvöddum við mann sem var stór partur af stórfjölskyldunni minni. Þrátt fyrir að „Kike“ hafi ekki verið blóðskyldur mér var ég alin upp við að hann hafi verið eitt af systkinum móður minnar.

Kike var giftur Elínborgu Sigurðardóttur, sem var systir mömmu minnar. Ég er skírð í höfuðið á Elínborgu en hún lést árið 1972.

Amma mín og afi, Ninna og Siggi, tóku Kike að sér sem eitt af börnunum sínum. Ég er alin upp við það Silvía og Finnbogi sem hann átti með seinni konu sinni henni Auði séu frændsystkini mín.

Þegar fjölskyldan kom saman var Kike alltaf sá hressasti. Hann talaði íslenskuna með sínum spænska hætti, sem var skemmtileg blanda

...