Fylkir á fína möguleika á að halda sæti sínu í Bestu deild kvenna í fótbolta eftir sigur á Stjörnunni í Garðabænum í gærkvöldi, 2:1. Fylkir er þremur stigum frá öruggu sæti þegar tvær umferðir eru eftir.

Hin bandaríska Jessica Ayers kom Stjörnunni yfir á 43. mínútu með eina marki fyrri hálfleiks. Fylkiskonur gáfust ekki upp. Eva Rut Ásþórsdóttir svaraði á 62. mínútu og varamaðurinn Marija Radojicic skoraði sigurmarkið á 70. mínútu.

Tap í gær hefði komið Fylki í afar slæm mál en þess í stað geta Fylkiskonur komist upp úr fallsæti með sigri á Tindastóli á Sauðárkróki á laugardag. Fari svo að Tindastóll vinni er ljóst að Fylkir fellur með Keflavík, en Keflavík er með 10 stig, sex stigum frá öruggu sæti og í mjög slæmum málum.

Stjarnan er

...