Þjóðadeildin Júlíus Magnússon er kominn í landsliðshóp Íslands.
Þjóðadeildin Júlíus Magnússon er kominn í landsliðshóp Íslands. — Morgunblaðið/Óttar Geirsson

Júlíus Magnússon, fyrirliði norska liðsins Fredrikstad, var í gær kallaður inn í landsliðshópinn í knattspyrnu fyrir leikina gegn Svartfjallalandi og Tyrklandi í Þjóðadeildinni. Hann kemur í stað Brynjars Inga Bjarnasonar, leikmanns HamKam í Noregi, sem meiddist um helgina. Júlíus er 26 ára gamall miðjumaður og hefur leikið fimm A-landsleiki, allt vináttuleiki og síðast í janúar 2023, en var í hópnum í fjórum leikjum í undankeppni EM á síðasta ári.