Hallur Kristján Stefánsson fæddist á Flateyri við Önundarfjörð 29. nóvember 1931. Hann lést á hjartadeild Landspítalans 21. ágúst 2024.

Foreldrar hans voru Stefán Guðmundur Brynjólfsson frá Mosvöllum í Önundarfirði, f. 1893, d. 1980, og Guðfinna Guðmunda Arnfinnsdóttir frá Lambadal í Dýrafirði, f. 1899, d. 1983. Systkini Halls eru í aldursröð: Brynhildur, f. 1922, d. 1998, Kjartan, f. 1924, d. 2003, Ingibjörg, f. 1926, d. 2023, og Lóa, f. 1933.

Hallur giftist hinn 14. nóvember 1953 Fjólu Haraldsdóttur, f. 20. nóvember 1926 á Gerðhömrum í Dýrafirði, d. 20. febrúar 2022. Foreldrar Fjólu voru Haraldur Kristinsson, f. 20.6. 1902, d. 13.5. 1990, og Helga Benónýsdóttir, f. 26.4. 1895, d. 13.11. 1985.

Börn Halls og Fjólu eru: 1) Stefán, f. 18. apríl 1954, börn hans og Guðlaugar Helgadóttur eru:

...