Hádegistónleikar hefja göngu sína að nýju, að loknu sumri, í Hafnarborg í dag kl. 12. Á þessum fyrstu tónleikum vetrarins koma fram mæðgur, Fanný Lísa Hevesi söngkona og Antonía Hevesi, píanóleikari og listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar. Mæðgurnar munu flytja óperuleg söngleikjalög og ýmiss konar óperuskotið eða óperutengt efni, eins og segir í tilkynningu. Fanný Lísa er nýútskrifuð úr námi við Performance Preparation Academy í Bretlandi. Aðgangur er ókeypis.