Ómar Grétarsson
Ómar Grétarsson

Landeldisfyrirtækið First Water hefur ráðið Ómar Grétarsson til að stýra sölu- og markaðsmálum fyrirtækisins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Ómar er með BS-gráðu í matvælafræði frá Háskóla Íslands og hefur einnig lokið MBA-námi frá Háskólanum í Reykjavík.

Fram kemur í tilkynningunni að hann hafi víðtæka reynslu af laxeldi en ferill Ómars í geiranum nær aftur til ársins 2013 þegar hann hóf störf sem sölustjóri hjá Fjarðalaxi.

Eftir sameiningu fyrirtækjanna Fjarðalax og Arnarlax undir merkjum þess síðarnefnda árið 2016 starfaði Ómar sem sölustjóri þar til á þessu ári þegar hann var ráðinn til First Water.

Eldisstöð First Water er í Þorlákshöfn en uppbygging á svæðinu skiptist í sex áfanga og eru áætluð verklok framkvæmda árið 2029.

...