Halla Helgadóttir
Halla Helgadóttir

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, í samstarfi við Bláa lónið og Parsons School of Design, stendur fyrir málþingi í New York á morgun, um hlutverk hönnunar á tímum náttúruvár. Viðburðurinn fer fram í Scandinavian House, Volvo Hall, 58 Park Ave, milli kl. 16 og 18.

Markmið viðburðarins er að koma umræðunni um neyðarhönnun og stefnumiðaða hönnunarhugsun á dagskrá. Heiðursgestur er Lilja D. Alfreðsdóttir og fundarstjóri er Halla Helgadóttir. Fram koma Sigurður Þorsteinsson, Robert Kirkbride, Yvette Chaparro og Arnhildur Pálmadóttir.