Sveinn Guðmannsson fæddist 3. september 1990. Hann lést 2. júní 2024. Útför fór fram í kyrrþey.

Elsku besti vinur okkar.

Ég er ekki að ná því að þú sért ekki hér lengur. Við töluðum saman á hverjum degi í fimm ár. Dagurinn var ekki búinn fyrr en ég heyrði í þér. Þegar ég skrifa þessa minningargrein hef ég ekki ennþá treyst mér í að lesa minningargreinarnar um þig. Það var alveg sama hvað gekk á hjá þér eða hvernig þér leið, alltaf varstu tilbúinn að hlusta og hughreysta mig. Ég man eins og gerst hefði í gær þegar ég kynntist þér fyrst í sláttuhópnum. Algjör gaur með hugmyndaflugið í lagi. Þú áttir oft erfitt elsku vinur en þú stóðst alltaf upp aftur og hélst áfram. Þú varst svo mikil hetja og með hjartað á réttum stað.

Þú stóðst upp fyrir minni máttar. Þú lést alltaf vini þína og fjölskyldu ganga fyrir.

...