Hinir vinsælu þættir The Bachelor og The Bachelorette hafa nú verið sýndir í yfir tuttugu ár. Undirrituð ætti kannski ekki að viðurkenna að horfa á slíka lágmenningu en gerir það hér og nú. Ekki að ég hafi séð margar seríur, en þó hef ég dottið í þær nokkrar af og til og haft gaman af
Ást Mun Jenn Tran finna sér eiginmann?
Ást Mun Jenn Tran finna sér eiginmann?

Ásdís Ásgeirsdóttir

Hinir vinsælu þættir The Bachelor og The Bachelorette hafa nú verið sýndir í yfir tuttugu ár. Undirrituð ætti kannski ekki að viðurkenna að horfa á slíka lágmenningu en gerir það hér og nú. Ekki að ég hafi séð margar seríur, en þó hef ég dottið í þær nokkrar af og til og haft gaman af. Nýjasta serían af The Bachelorette er nú sýnd í Sjónvarpi Símans Premium og þegar þetta er ritað er aðeins lokaþátturinn eftir. Í þessari seríu fylgjumst við með hinni geðþekku Jenn Tran, ungri konu sem hefur hingað til verið afar óheppin í ástum.

Fyrir ykkur sem aldrei hafið séð þáttinn, þá mætir heimasæta og einhverir tugir manna sem allir reyna að heilla hana upp úr skónum, en markmiðið er að þátturinn endi á trúlofun. Alltaf er mikið drama í gangi, enda slettist stundum upp á vinskapinn þegar margir

...