Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari kannast ekki við það að Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari hafi þurft að líða ofsóknir og líflátshótanir frá Mohamad Kourani í garð hans árum saman, umfram þá dóma sem hafa fallið.

Þetta segir Sigríður í greinargerð sem birt var á vef ríkissaksóknara í gær.

Kourani hefur tvívegis hlotið dóm fyrir hótanir í garð Helga. Á tíu daga tímabili í janúar árið 2021 sendi hann Helga sex tölvupósta með líflátshótunum í garð hans og í sumum tilvikum einnig fjölskyldu hans. Svo þann 7. mars hótaði hann Helga ítrekað lífláti í afgreiðslurými ríkissaksóknara.

Ekki frekari líflátshótanir

Ríkissaksóknari kveðst ekki kannast við önnur tilvik umfram þau sem Kourani hefur hlotið dóm

...