Sjónarspil Eldgosin á Reykjanesi hafa verið mjög tilkomumikil.
Sjónarspil Eldgosin á Reykjanesi hafa verið mjög tilkomumikil. — Morgunblaðið/Eyþór Árnason

Nýjar mælingar benda til að landris sé hafið á ný í Svartsengi á Reykjanesi. Samhliða heldur virkni þess eldgoss sem nú stendur yfir áfram að minnka. Of snemmt er þó að segja til um goslok að því er Minney Sigurðardóttir náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands sagði seint í gærkvöldi.

„Hraunbreiðan norðan við gosopin heldur áfram að stækka á hægum hraða til norðurs og þykknar einnig á sama tíma. Að svo stöddu ógnar hraunflæði ekki innviðum í nágrenni gosstöðvanna,“ segir í tilkynningu. „Mælingar á gosóróa og gasútstreymi frá eldgosinu benda einnig til þess að dregið hafi nokkuð úr gosinu síðustu daga.“

Það að landris sé hafið á ný þykir benda til að innflæði í kvikusöfnunarsvæðið undir Svartsengi sé meira en flæði úr eldgosinu á yfirborðinu. Er þetta svipuð þróun og eftir að síðasta gos hófst þann 29 maí.

...