Hitinn mældist 24,8 gráður á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði kl 9 í gærmorgun. Eyþór Bragi Bragason bóndi á Bustarfelli segir að þótt hitatölurnar séu háar þá sé hvasst og varla stætt í moldroki úr suðvestri eða vestri og við þær aðstæður njóti menn ekki hitans
Bustarfell Eyþór Bragason hefur klárað heyskap eftir óþurrkasumar. Hann kallar eftir viðbrögðum Þjóðminjasafnsins vegna viðhalds á húsum.
Bustarfell Eyþór Bragason hefur klárað heyskap eftir óþurrkasumar. Hann kallar eftir viðbrögðum Þjóðminjasafnsins vegna viðhalds á húsum. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

Hitinn mældist 24,8 gráður á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði kl 9 í gærmorgun.

Eyþór Bragi Bragason bóndi á Bustarfelli segir að þótt hitatölurnar séu háar þá sé hvasst og varla stætt í moldroki úr suðvestri eða vestri og við þær aðstæður njóti menn ekki hitans.

„Heyskap er lokið en hann gekk hægt. Þetta var leiðinlegt heyskaparsumar og við þurftum að vinna hratt þegar þurrkur gafst. Það kom sæmilegur kafli í júlí þar sem hitinn náði 27 gráðum hér á Bustarfelli. Síðan kom langur rigningarkafli, ekki hægt að þurrka hey og heyskap lauk ekki hér fyrr en í lok ágúst.“

Laxinn tók ekki á tímabili

Júnímánuður var kaldur með hreti og snjókomu fram í miðjan júní þannig

...