Sýningin Að safna regni verður opnuð þann 7. september kl. 16 í Höggmyndagarðinum á Nýlendugötu 17a. Þar sýnir myndlistarkonan Nína Óskarsdóttir. „Vatnið seytlar niður steinleirinn, úr einu kari yfir í annað
Nína Óskarsdóttir
Nína Óskarsdóttir

Sýningin Að safna regni verður opnuð þann 7. september kl. 16 í Höggmyndagarðinum á Nýlendugötu 17a. Þar sýnir myndlistarkonan Nína Óskarsdóttir.

„Vatnið seytlar niður steinleirinn, úr einu kari yfir í annað. Hægt og rólega fyllast þau, ef það rignir í haust. Rigningarvatnið, undirstaða lífsins, smýgur í gegn um jarðlögin, nærir plöntur og dýr. Það er í miðju hringrásar ferðalagi og ber með sér visku himnanna áður en það safnast hér saman, staldrar örlítið við og heldur svo áfram,“ segir í kynningartexta.

Nína Óskarsdóttir útskrifaðist með MA-gráðu í myndlist árið 2020 frá Listaháskóla Íslands, þar sem hún kláraði einnig BA-nám sitt 2014. Samhliða meistaranámi sínu stundaði hún kvöldnámskeið í keramíkdeild Myndlistarskólans í Reykjavík og hefur eftir nám tileinkað iðkun sína leirnum.