Bókin Midnight Sun eftir Stephenie Meyer frá árinu 2020, sem er hluti af Twilight-bókaseríunni, verður brátt að teiknimyndaseríu. Þetta er staðfest á vefsíðu streymisveitunnar Netflix, sem er með þættina í þróun. Bókin segir frá fyrstu bókinni í Twilight-sögunni en hún er skrifuð út frá sjónarhorni Edwards Cullens, glitrandi vampíru sem verður ástfangin af manneskjunni Bellu Swan. Twilight-serían og kvikmyndirnar eftir þeim með Kristen Stewart og Robert Pattinson í aðalhlutverkum slógu áhorfendamet. Nánar á K100.is.