Björgvin Ólafur Sveinsson fæddist 3. desember 1949. Hann lést 22. ágúst 2024.

Rósa Benediktsdóttir fæddist 15. júlí 1951. Hún lést 22. ágúst 2024.

Útför þeirra fór fram 9. september 2024.

Nýlega kvöddum við hinstu kveðju okkar dýrmætu vini Rósu og Björgvin.

Fráfall þeirra hjóna er eins og vondur draumur, líkast því að munir sem manni þykir afar vænt um og eiga sér fastan stað uppi á bestu hillunni í stofunni hafi fallið niður og brotnað i þúsund mola.

Rósa og Björgvin voru samhent í lífinu sem hjón en ekki síður sem bestu vinir. Það voru margar ágjafir í lífi þeirra en þau stóðu þær af sér eins og klettar á strönd í sjávarróti.

Rósa vann um tíma á hjúkrunardeild

...