Uppfærður samgöngusáttmáli var undirritaður af ráðherrum, borgarstjóra og bæjarstjórum í síðasta mánuði.
Uppfærður samgöngusáttmáli var undirritaður af ráðherrum, borgarstjóra og bæjarstjórum í síðasta mánuði. — Morgunblaðið/Eyþór

Samkvæmt framkvæmdaáætlun samgöngusáttmálans kemur fram að uppsöfnuð fjárþörf fram til 2034 sé allt að 43,5 milljarðar króna, af því gefnu á áætlanir standist allar. Gert er ráð fyrir lánsheimild til Betri samgangna sem verður með ríkisábyrgð til að brúa þetta bil.

Sáttmálinn sem er til 2040 er aðeins formlega fjármagnaður til ársins 2029 með láni upp á 22,3 milljarða króna. Lánið er komið í 30 milljarða króna strax 2030 en um er að ræða kúlulán þar sem það má ekki hafa áhrif á framkvæmdaféð, eins og kemur fram í gögnum.

Fjármögnunarendi samgöngusáttmálans hefur ekki verið undirbúinn nógu vel að mati Magnúsar Arnar Guðmundssonar, formanns bæjarráðs Seltjarnarnesbæjar og stjórnarmanns í Strætó.

Magnús segir að það sé mat hans og fleiri sveitarstjórnarmanna á Seltjarnarnesinu að óábyrgt sé að

...