Elín Hanna Hannesdóttir (Ella) fæddist á Akranesi 9. október 1927. Hún lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Höfða á Akranesi 9. ágúst 2024.

Foreldrar hennar voru Hannes Júlíus Guðmundsson, f. 1903, d. 1974, og Elín Ólafsdóttir, f. 1900, d. 1927. Seinni kona Hannesar var systir Elínar, Herdís Ólafsdóttir, f. 1911, d. 2007. Elín var elst þriggja systkina, bræður hennar voru: Helgi, f. 1939, d. 2015, og Guðmundur f. 1947.

Eiginmaður Elínar var Þorsteinn Þorvaldsson frá Akranesi, f. 30.6. 1924, d. 2.4. 2018. Þau eignuðust eitt barn, kjörsoninn Hannes Þorsteinsson, f. 1952. Fyrrverandi eiginkona hans var Þórdís G. Arthursdóttir, þau skildu. Synir þeirra eru: 1) Þorsteinn, f. 1978, sambýliskona Stephanie N. Gustafsson. Börn hans eru Grétar Júlíus, Frosti og Bríet. 2) Bjarni Þór, f. 1981, eiginkona Helga Björk Jósefsdóttir. Börn þeirra eru Elín Þóra,

...