— Morgunblaðið/Árni Sæberg

Ákveðin kyrrð hefur ríkt yfir gosstöðvunum á Reykjanesskaga frá því síðasta eldgosi lauk á föstudag. Samt rýkur enn upp úr þöglum gígunum. Ólíkt fyrsta gosinu í hrinunni árið 2021 stóðu jarðeldarnir yfir í fremur skamman tíma, aðeins 14 daga. En eins og eftir síðasta gos er nú beðið eftir nýju, þar sem kvika safnast áfram fyrir undir Svartsengi.