Minni sátt er um samgöngusáttmálann en nafnið gæti gefið til kynna. Hörð gagnrýni hefur komið fram á undirbúning, áhættumat, fjármögnun og framúrkeyrslu, svo nokkuð sé nefnt. Magnús Örn Guðmundsson, stjórnarmaður í strætó og bæjarfulltrúi á…
Magnús Örn Guðmundsson
Magnús Örn Guðmundsson

Minni sátt er um samgöngusáttmálann en nafnið gæti gefið til kynna. Hörð gagnrýni hefur komið fram á undirbúning, áhættumat, fjármögnun og framúrkeyrslu, svo nokkuð sé nefnt. Magnús Örn Guðmundsson, stjórnarmaður í strætó og bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi, setti fram alvarlegar athugasemdir í samtali við blaðið í gær og benti meðal annars á að fjármögnun væri verulega ábótavant, auk þess sem kostnaður væri enn vanáætlaður, þrátt fyrir að hafa tvöfaldast í nýrri uppfærslu sáttmálans.

Magnús Örn segir dæmið „einfaldlega ekki hugsað til enda“ og óábyrgt sé að samþykkja sáttmálann eins og hann liggi fyrir.

Þá gagnrýnir hann rekstraráætlun borgarlínunnar, sem gerir ráð fyrir margföldun í notkun á almenningssamgöngum. Áætlað sé að fargjöld standi undir 40% af rekstrarkostnaði, sem sé ekki raunhæft og í dag standi þau aðeins undir

...