Tónlistarmiðstöð Árni Hjörvar er nýr markaðs- og kynningarstjóri.
Tónlistarmiðstöð Árni Hjörvar er nýr markaðs- og kynningarstjóri.

Árni Hjörvar Árnason hefur verið ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar.

Árni er meðlimur hljómsveitarinnar The Vaccines. Samhliða tónlistarferlinum hefur Árni starfað við upptökustjórn ásamt því að sinna tónlistarblaðamennsku í hjáverkum. Undanfarin ár hefur hann einnig tekið að sér ráðgjöf, verkefnastjórnun og almannatengslastörf fyrir hönd Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar og Íslandsstofu.

Í starfshópi Tónlistarmiðstöðvar eru margir af helstu sérfræðingum landsins á sviði tónlistariðnaðar, að því er fram kemur í tilkynningu. Auk Árna Hjörvars hafa þau Finnur Karlsson og Anna Rut Bjarnadóttir nýlega bæst í hóp starfsfólks miðstöðvarinnar. Finnur var í maí

...