Hljómsveitin Hjálmar heldur tónleika á Kaffi Flóru í kvöld, fimmtudagskvöldið 12. september, kl. 20. Um þessar mundir eru 20 ár frá því fyrsta plata Hjálma leit dagsins ljós. Hljóðlega af stað var tekin var upp í Geimsteini í Keflavík
Tónleikahald Hljómsveitin Hjálmar fagnar afmæli fyrstu plötu sinnar.
Tónleikahald Hljómsveitin Hjálmar fagnar afmæli fyrstu plötu sinnar.

Hljómsveitin Hjálmar heldur tónleika á Kaffi Flóru í kvöld, fimmtudagskvöldið 12. september, kl. 20. Um þessar mundir eru 20 ár frá því fyrsta plata Hjálma leit dagsins ljós. Hljóðlega af stað var tekin var upp í Geimsteini í Keflavík. Platan sló, að því er segir í kynningartexta, rækilega í gegn og skilaði sveitinni Íslensku tónlistarverðlaununum fyrir rokkplötu ársins auk nafnbótarinnar Bjartasta vonin árið 2004. Þessum tímamótum fagnar sveitin með tónleikahaldi en hún hélt tvenna tónleika á Ölveri í Reykjavík í maí fyrir fullu húsi.

„Hjálmar eru þekktir fyrir að vera eitt albesta tónleikaband hér á landi og það má því ­búast við frábærum tónleikum,“ segir í kynningartexta. Sveitina skipa þeir Guðmundur Kristinn Jónsson, Helgi Svavar Helgason, Sigurður Guðmundsson, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson og Þorsteinn Einarsson.