30 ára Tvíburarnir Donni og Helga ólust upp á Húsavík. Donni starfar við smíðar hjá fyrirtækinu Brár í Reykjavík en Helga er í sérnámi í lyflækningum á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Fjölskylda Maki Donna er Helga Guðrún Guðmundsdóttir, f. 1994, hárgreiðslukona. Börn þeirra eru Viktor Bergmann, f. 2020, og Selma, f. 2024. Maki Helgu er Sigþór Hannesson, f. 1992, vélfræðingur og rafvirki. Dætur þeirra eru Maren Lea, f. 2021, og Arna Móey, f. 2023. Foreldrar Donna og Helgu eru Brynja Björk Halldórsdóttir, f. 1962, og Heiðar Olgeirsson, f. 1967, búsett í Hvalfirði.