Guðjón Hjörleifur Finnbogason fæddist 5. ágúst 1947. Hann lést 22. ágúst 2024.

Útför hans fór fram 6. september 2024.

„Nei hæ,“ heyrðist þegar við Skagakonurnar komum til þín á Fossahlíð í sumar. Þú hafðir alltaf svo einstaka rödd og raddblæ og smitandi hlátur. Ég hafði ekki séð þig í nokkur ár, Gaui minn, þegar ég kom til þín í sumar. Það var virkilega gott að sjá þig, þótt það hafi vissulega verið erfitt líka. Ég er svo þakklát fyrir þessa heimsókn.

Ég á margar góðar minningar um þig, Gaui minn. Ég var mikið hjá ykkur þegar ég var yngri. Ég ferðaðist mikið um landið með ykkur Hönnu Jónu og Sunnu. Ég sé okkur fyrir mér í bílnum. Þú undir stýri, helst alveg upp við næsta bíl, Hanna Jóna syngjandi og við Sunna aftur í með sitt vasadiskóið hvor.

Þú

...