Ólína Margrét Jónsdóttir (Lína) fæddist 1. ágúst 1945. Hún lést 30. ágúst 2024.

Útför hennar fór fram 6. september 2024.

Elsku amma, það er mikill sársauki í hjarta mínu af þeirri tilhugsun að þú sért ekki lengur með okkur, en ég veit að englarnir munu fagna komu þinni. Þú munt aldeilis verða flottasta frúin í himnaríki. Ég vildi óska að ég gæti fengið að segja þér hvað ég elska þig mikið, bara einu sinni enn. Ég lofa þér að ég mun bera nafnið þitt áfram með miklu stolti. Ég mun segja Alexöndru og Elísabetu allar þær sögur sem ég man eftir af þér, frá því þegar við vorum að ræða töskur og skó, velja naglalakk saman, frá því þegar við sátum saman og þú helst utan um mig og við sungum okkar uppáhaldslög og bara öllum fallegu stundunum sem við áttum saman.

Ég elska þig svo ótrúlega mikið og söknuðurinn

...