Ásta Þórunn Þráinsdóttir fæddist á Akureyri 24. ágúst 1956. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 2. september 2024.

Foreldrar hennar voru bæði fædd og uppalin á Akureyri. Þau voru Þráinn Jónsson, f. 23. ágúst 1935, d. 22. febrúar 2006, og Halla Gunnlaugsdóttir, f. 18. desember 1938, d. 9. október 2019. Bróðir Ástu Þórunnar er Gunnlaugur, f. 16. mars 1965, búsettur í Kópavogi, sambýliskona hans er Kolbrún Kolbeinsdóttir. Börn Gunnlaugs og Erlu Margrétar Haraldsdóttur, fv. eiginkonu, eru Gauti, f. 9. ágúst 1992, og Sandra Ýr, f. 13. maí 1996.

Eiginmaður Ástu Þórunnar var Ágúst Nordgulen, f. 30. júlí 1957, d. 23. maí 1999. Ásta og Ágúst giftu sig í Bústaðakirkju 21. apríl 1984. Ágúst lést í maí 1999 eftir erfið veikindi, 41 árs gamall. Ásta Þórunn og Ágúst eignuðust þrjú börn, þau eru: 1) Halla Sjöfn, f. 29. desember 1979, unnusti hennar

...