Gizur Ísleifur Helgason fæddist á Akureyri 23. mars 1942. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Søndersøhave í Gentofte, Danmörku, 4. september 2024.

Foreldrar hans voru Valý Þorbjörg Ágústsdóttir, f. 23. júní 1904, d. 20. jan. 1999, og Helgi Ólafsson, f. 10. okt. 1899, d. 13. maí 1976. Eldri systkini Gizurar: Ágúst Hörður, f. 13. feb. 1927, d. 2010, Herdís, f. 10. júlí 1928, d. 2017, Ólafur Haukur, f. 11. apríl 1930, d. 2017, Halldóra, f. 15. apríl 1932, d. 2005, Guðlaugur, f. 24. jan. 1934, Anna, f. 13. jan. 1936, og Hálfdán f. 24. nóv. 1937.

Gizur giftist Benedicte Helgason (áður Backer) 22. ágúst 1998, þau eiga Bjarke, f. 19. sept. 1997, og Lauru, f. 15. mars 2005. Börn Gizurar með fyrri konu sinni, Maríu Sveinbjörnsdóttur, eru: Sveinbjörn, f. 17. maí 1962, giftur Kristínu Lindu Ragnarsdóttur, Ágúst Helgi, f. 29. sept. 1966, giftur Söndru

...