Joan Katrín Lewis fæddist 9. nóvember 1946. Hún lést 30. ágúst 2024.

Foreldrar hennar voru Lennard Lewis rafvirki og Marjorie Lewis verslunarkona og húsmóðir, bæði fædd 1920. Systir Joan er Margaret Lockwood sjúkraliði, f. 1948, gift David Lockwood rafvirkja. Þau búa í Huddersfield í Yorkshire, en þar var Joan fædd og uppalin. Joan lauk gagnfræðaprófi og vann ýmis verslunar- og gjaldkerastörf meðan hún átti þar heima.

Joan kynntist í Huddersfield eftirlifandi eiginmanni sínum, Kristni Arnþórssyni, f. 7.3. 1939, en hann var við nám í Huddersfield College of Technology í textíltæknifræði. Þau giftust í kirkjunni Congregational Church hinn 3. júlí 1965, en í þessari kirkju kynntust þau tveimur árum fyrr. Joan og Kristinn fluttu til Íslands og settust að á Akureyri.

Þau eignuðust þrjár dætur, þær

...