Fimm uppistandarar munu troða upp með brakandi ferskt og bráðfyndið efni á Sjálandi hinn 19. september klukkan 20, en miða má nálgast á tix.is. Þar verða þær Snjólaug Lúðvíksdóttir, Birna Rún Eiríksdóttir, Steiney Skúladóttir, Björk Guðmundsdóttir…
Steiney, Snjólaug, Birna Rún, Björk og Inga Steinunn verða með uppistand.
Steiney, Snjólaug, Birna Rún, Björk og Inga Steinunn verða með uppistand. — Morgunblaðið/Árni Sæberg

Fimm uppistandarar munu troða upp með brakandi ferskt og bráðfyndið efni á Sjálandi hinn 19. september klukkan 20, en miða má nálgast á tix.is. Þar verða þær Snjólaug Lúðvíksdóttir, Birna Rún Eiríksdóttir, Steiney Skúladóttir, Björk Guðmundsdóttir og Inga Steinunn Henningsdóttir, allar margreyndar í gríni og flestar vanir uppistandarar.

Steiney er sú eina í hópnum sem er að þreyta frumraun sína sem uppistandari.

„Ég ætla að gera grín að því hvernig það er að eiga mömmu sem er fræg leikkona og færa Íslendingum sannleikann um það,“ segir Steiney, sem er eins og margir vita dóttir Halldóru Geirharðsdóttur.

„Fólk heldur að það sé svo gaman,“ segir Steiney og segir fólk verða að mæta til að vita hvort það sé gaman í raun.

...