Sýning Mireyu Samper, Blómfall, verður opnuð í Portfolio galleríi í dag, laugardaginn 14. september, kl. 16-18. Sýningin stendur til 5. október Í texta sem Jón Proppé ritar fyrir sýninguna segir: „Myndlist Mireyu Samper hefur alla tíð…
Efniviður List Mireyu einkennist af áherslu á efnið sem hún vinnur í.
Efniviður List Mireyu einkennist af áherslu á efnið sem hún vinnur í.

Sýning Mireyu Samper, Blómfall, verður opnuð í Portfolio galleríi í dag, laugardaginn 14. september, kl. 16-18. Sýningin stendur til 5. október

Í texta sem Jón Proppé ritar fyrir sýninguna segir:

„Myndlist Mireyu Samper hefur alla tíð einkennst af áherslu á efnið sem hún vinnur í, eiginleika þess og möguleika, eðli litarefna og pensla, pappírs, steina og málma. Formin og myndirnar sækir hún sömuleiðis til efnis og náttúru. Á þessari sýningu er gróður jarðar mest áberandi en úrvinnslan mun koma gestum á óvart. Mireya hefur farið víða, lært á Íslandi, í Frakklandi og á Ítalíu, búið og ferðast um Indland, Japan, Kína, Indónesíu og víðar, en sýnt verk sín í enn fleiri löndum. Alls staðar hefur hún drukkið í sig menningu og sérstaklega handverk, aðferðir og tækni listamanna, t.d. í Japan, en verkin eiga alls staðar

...