Svanhildur Jónsdóttir fæddist 30. ágúst 1961. Hún lést 19. ágúst 2024.

Útför hennar fór fram 12. september 2024.

Í dag kveðjum við góða og trausta vinkonu til margra ára.

Svanhildi og Bárði kynntumst við fjölskyldan er við bjuggum í sama stigagangi við Reynimelinn í nokkur ár. Ekki var mikill samgangur á þeim árum nema Björg dóttir okkar passaði stundum Ragnheiði og Helga. Eftir að við fluttum jukust samskiptin og margar góðar stundir höfum við átt saman, ferðast saman innanlands og nokkrum sinnum til útlanda.

Svanhildur var dugleg að halda utan um fólkið sitt og vini. Þau eru ófá heimboðin sem við höfum átt hjá þeim hjónum og árleg þorrablót hjá þeim eru minnisstæð er vinir þeirra og ættingjar komu saman.

Ég held að

...