Eiríkur Egill Sigfússon fæddist í Reykjavík 2. október 1955. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi í Reykjavík 31. ágúst 2024.

Foreldrar hans voru Sigfús Jón Oddsson frá Staffelli, f. 11. maí 1917, d. 27. júlí 1994, og Þorbjörg Eiríksdóttir frá Egilsseli í sömu sveit, f. 11. mars 1916, d. 9. desember 1997. Þau hófu búskap á Staffelli árið 1941 en þar hefur sama ættin búið frá árinu 1703. Systkini Eiríks eru: Anna Guðbjörg, f. 12. apríl 1942, d. 28. september 2009. Maður hennar var Einar Long Bergsveinsson, f. 10. júní 1942, d. 8. mars 1999. Þau eignuðust fjögur börn en fyrir átti Anna eina dóttur; Sigríður Petra, f. 1. júní 1943. Maður hennar er Guttormur Sigfússon, f. 17. apríl 1938. Þau eiga fjögur börn; Oddur, f. 2. október 1948, d. 16. apríl 2013. Kona hans er Sigríður Ingvadóttir, f. 6. september 1964. Þau eiga tvo syni.

Hinn 12. september

...