Takk, Guð, fyrir að leyfa mér að velja hinn ótæmandi kærleika þinn. Gefðu mér kjark til að þiggja hann. Hvíla í honum, lifa honum og njóta hans.
Sigurbjörn Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson

Sigurbjörn Þorkelsson

Þú sem ert vinurinn besti, Jesús Kristur. Vaktu mér yfir og verndaðu mig. Lýstu mér og leiddu og tak mig þér í fang þegar ég get ekki lengur gengið, þegar ég get ekki meir.

Þótt yfir mig þyrmi, ég finni til innilokunarkenndar, líði líkt og blaktandi strái í vindi, sem vingull sem sveiflast og veit ekki hvað verður, þá finn ég samt fyrir kærleika þínum. Hann brennur sem vermandi bál allt í kringum mig. Og ég kemst ekki fram hjá honum, ekki yfir hann né undir og ekki í gegnum hann. Kærleikur þinn umlykur mig á bak og brjóst svo ég þarf ekkert að óttast. Hvílík uppgötvun! Hvílík upplifun! Hvílík blessun!

Kærleikur þinn verndar mig og varðveitir og yfirgefur mig ekki, aldrei. Hann er ótæmandi uppspretta. Lækur sem ekki þornar upp, heldur streymir fram og líður aldrei undir

...