Jenný Gunnarsdóttir fæddist 1. mars 1957 í Reykjavík. Hún lést á líknardeild Landspítalans 13. ágúst 2024.

Foreldrar hennar voru Ingibjörg Jóhannesdóttir, f. 1939, d. 2021, og Gunnar Andrésson, f. 1935, d. 1969. Stjúpfaðir hennar er Sveinn Ingólfsson, f. 1940. Systkini hennar eru Gunnar Brynjólfur Gunnarsson, f. 1960, Bjarney Margrét Gunnarsdóttir, f. 1962, og Bryndís Sveinsdóttir, f. 1978.

Jenný giftist eftirlifandi eiginmanni, Þorvaldi Sigurðssyni, f. 1956, þann 22. apríl 2004 eftir langt samband. Dóttir Jennýjar er Guðrún Edda Sveinbjörnsdóttir, f. 1984. Guðrún Edda er í sambúð með Justin Shouse, f. 1981, og eiga þau tvær dætur, Sóleyju Lilju Shouse, f. 2017, og Ölmu Ingibjörgu Shouse, f. 2021.

Jenný ólst upp í Garðabæ og gekk í Flataskóla en eftir það fór hún í Kvennaskólann í Reykjavík sem

...