50 ára Sigurlín er fædd og uppalin á Selfossi og er búsett þar. Hún hefur verið starfandi íþróttakennari í 26 ár en söðlaði um í vetur og er orðin íþróttafræðingur á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði. Áhugamálin eru íþróttir og útivist.


Fjölskylda Eiginmaður Sigur­línar er Hrafnkell Björnsson, f. 1969. Börn þeirra eru Alexander, f. 2001, og Díana, f. 2008. Foreldrar Sigurlínar eru hjónin Guðbjörg Haraldsdóttir, f. 1951, og Garðar Gestsson, f. 1946, búsett á Selfossi.