Nú telja aðdáendur Gísla Marteins niður klukkutímana þar til hann birtist á föstudagskvöldi með sinn vikulega þátt. RÚV fer mikinn í auglýsingum þessa dagana um þættina og hefur dregið fram Sigurbjörn Árna Arngrímsson íþróttalýsanda til að poppa dæmið upp
Vikan Gísli Marteinn er væntanlegur, enn á ný.
Vikan Gísli Marteinn er væntanlegur, enn á ný. — Skjáskot/RÚV

Björn Jóhann Björnsson

Nú telja aðdáendur Gísla Marteins niður klukkutímana þar til hann birtist á föstudagskvöldi með sinn vikulega þátt. RÚV fer mikinn í auglýsingum þessa dagana um þættina og hefur dregið fram Sigurbjörn Árna Arngrímsson íþróttalýsanda til að poppa dæmið upp. Lýsir hann fjörlega þegar Gísli fer á fætur og hjólar að sjálfsögðu í vinnuna með Berglindi Festival á bögglaberanum. Skemmtilegur hann Sigurbjörn Árni, mun skemmtilegri en Gísli ef út í það er farið.

Ekki hefur verið upplýst hverjir verða gestir í fyrsta þætti en í vetur spáir Ljósvaki því að einhverjir af eftirtöldum setjist í sófann:

Bubbi Morthens, Björn Jörundur, söngkonan Laufey, Halla Tómasdóttir, Dóri DNA, Sigríður Hagalín, Aníta Briem, Bjarni Ben, Einar Þorsteinsson, Gói, Auddi Blö, Bríet, Ólafur Darri, Salvör Nordal, Helgi Björns, Kristrún Frosta, Svandís Svavars, Halldóra Geirharðs, Bergur

...