Karl Óskar Hjaltason fæddist í Reykjavík 25. nóvember 1951. Hann lést 3. september 2024.

Faðir Karls var Hjalti Pálsson frá Hólum í Hjaltadal, f. 1.11. 1922, d. 24.10. 2002, landbúnaðarverkfræðingur og framkvæmdastjóri hjá SÍS. Móðir Karls var Ingigerður Karlsdóttir frá Reykjavík, f. 21.6. 1927, d. 28.3. 2013, flugfreyja og húsmóðir. Systkini Karls eru Guðrún Þóra f. 26.11. 1954, d. 7.3. 2021, og Páll Hjalti, f. 7.8. 1959, eiginkona Steinunn Sigurðardóttir, f. 18.3. 1960.

Karl kvæntist þann 8.3. 1980 Kristínu Ólafsdóttur, f. 15.5. 1954. Börn þeirra eru: 1) Ingigerður, f. 30.11. 1977. Eiginmaður hennar er Einar Freyr Einarsson, f. 25.9. 1973. Börn þeirra eru a) Sara Líf, f. 7.11. 2000. Unnusti hennar er Róbert Karl Segatta, f. 11.12. 1998, b) Aníta Sól, f. 9.3. 2005, c) Róbert Máni, f. 12.10. 2008. 2) Guðlaug Kristín, f. 19.7. 1980. Börn hennar

...