Það hefur iðulega sýnt sig að Íslendingar gera vel fyrir sig fylgist þeir jafnan rækilega með viðhorfum dr. Baudenbachers, lagaspekings, sem iðulega hafa tekið til málefna Íslands. Í viðtali við Andrés Magnússon í Morgunblaðinu á mánudag segir Baudenbacher um EES-samstarfið, að þrátt fyrir að fyrirkomulagið hafi um margt virkað vel, og standi óhaggað þremur áratugum síðar, þá innifeli EFTA-stoðin engu að síður mjög alvarlega veikleika.
Vissulega hafi Norðmenn algera yfirburði þar, sem sé að nokkru skiljanlegt þar sem þeir greiði 89% kostnaðarins, og geti, ekki síst í krafti þess, haft einhverja stjórn á eftirlitsstigi, sem sé auðvitað lakara. Eins væri óheppilegt, bætti hann við, að stjórnarmenn Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) kæmu jafnan úr stjórnsýslu aðildarríkjanna og hyrfu síðan margir þeirra þangað aftur, svo að sjálfstæði þeirra væri ekki óyggjandi og stofnanaminnið þar að auki brigðult.
Dr. Baudenbacher segir einnig
...