Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Það sem eftir stendur af byggingunni sem kviknaði í fyrir rúmu ári á Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði verður líklega rifið á næstu dögum eða vikum að sögn Hildar Bjarnadóttur byggingarfulltrúa í Hafnarfirði. Eins og fram hefur komið hafa íbúar furðað sig á því að rústirnar standi enn, ásamt ýmsu drasli, svo nærri fjölmennri íbúabyggð.
„Því miður hefur þetta tekið svolítið langan tíma. Málið hefur verið flókið úrlausnar þar sem þarna eru
...