Margt er á reiki í málinu um þessar mundir, meðal annars fallstjórn sagna. Vilji maður klára verk hefur hingað til þurft að ljúka því í þágufalli. Sama er að segja um náttúruhamfarir: þeim – flóðunum, eldgosunum hefur þurft að ljúka

Margt er á reiki í málinu um þessar mundir, meðal annars fallstjórn sagna. Vilji maður klára verk hefur hingað til þurft að ljúka því í þágufalli. Sama er að segja um náttúruhamfarir: þeim – flóðunum, eldgosunum hefur þurft að ljúka. Berist frétt um að „þau“ séu að ljúka er best að halda sig inni við enn um sinn.