Edda Kjartansdóttir fæddist í Reykjavík 29. október 1936. Hún lést á Hrafnistu í Laugarási 1. september 2024.

Foreldrar Eddu voru Bergþóra Skarphéðinsdóttir, f. 2. september 1910, verkakona, d. 24. júlí 1992, og Kjartan Guðjónsson, f. 24. nóvember 1907, matsveinn, d. 12. maí 1952.

Systkini Eddu eru Pálína, f. 12. mars 1931, d. 18. maí 2010. Maður hennar var Haraldur Hermannsson. Sjöfn, f. 8. september 1938. Maður hennar var Guðmundur Óskarsson. Hrönn, f. 30. mars 1940, d. 10. janúar 2021. Bróðir Eddu samfeðra var Benedikt Kristinn Gröndal Kjartansson, f. 16. mars 1929, d. 5. desember 2005. Kona hans var Soffía Haraldsdóttir.

Edda gekk í hjónaband með Jónasi Hólmsteinssyni frá Raufarhöfn á Raufarhöfn hinn 30. júlí 1955. Jónas var fæddur 8. júlí 1934. Hann lést 24. desember 2017. Foreldrar Jónasar

...