Leikbann Aron Sigurðarson leikur ekki með KR gegn Vestra í Bestu.
Leikbann Aron Sigurðarson leikur ekki með KR gegn Vestra í Bestu. — Morgunblaðið/Ólafur Árdal

KR verður án sóknarmannsins Arons Sigurðarsonar er liðið mætir Vestra á heimavelli í fyrstu umferð neðri hluta Bestu deildar karla í fótbolta á sunnudag. Aron fékk sitt fjórða gula spjald á leiktíðinni gegn Val á mánudag. Vestri leikur einnig án lykilmanns því markvörðurinn Karl Eskelinen er einnig kominn í bann. Halldór Jón Sigurður Þórðarson hjá Fylki, Jakob Snær Árnason leikmaður KA og FH-ingurinn Logi Hrafn Róbertsson eru einnig komnir í bann.